Rollurnar
16.10.2006 18:27:01 / DiMaggio

kljmlkmjijmmlm


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 18:20:33 / DiMaggio

hgtyhgg

<div><embed src="http://widget-78.slide.com/widgets/slideticker.swf" quality="high" scale="noscale" salign="l" wmode="transparent" flashvars="site=widget-78.slide.com&channel=72057594045405048&cy=ms&il=1" width="700" height="250" name="flashticker" align="middle"/><div style="width:700px;text-align:left"><a style="vertical-align:middle" href=" http://www.slide.com/msnew/ticker?cid=72057594045405048&cy=ms&tt=0" target="_blank"><img src=" http://widget-78.slide.com/h2/72057594045405048/ms_t000_v000_a000_f00/images/slide3.gif" border="0"/></a> <a href=" http://www.slide.com/msnew/ticker?cid=72057594045405048&cy=ms&tt=0" target="_blank">Get Your Own!</a> | <a href=" http://www.slide.com/msview/ticker?cid=72057594045405048&cy=ms&tt=0" target="_blank">View Slideshow</a></div></div>

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 22:00:22 / DiMaggio

Sjaldan drukkið jafn mikið á æfinni

Hvað er í gangi eiginlega? Um helgina var ég steggjaður í annað sinn og núna af Pétri bróðir, frændum mínum og vinnufélögum. Þetta var vægast sagt mjög svo skemmtilegt enda eiga steggja veislur að vera það. Þetta kom mér mjög á óvart vegna þess að Pétur var eitthvað búinn að vera að væla um að þetta hefði ekki verið að ganga upp hjá sér og hann væri frekar fúll yfir því en ég get bara ekki annað en sagt takk fyrir mjög skemmtilegt kvöld. Ég var látinn í frekar flottan búning en hann saman stóð af gulum og rauðum nærbuxum, svuntu, stígvélum, hárkollu og gerfitönnum þannig að þið getið ýmindað ykkur hvernig ég hef litið út. Eins og í fyrri steggjaveisluninni þá var ég látin drekka þetta helvíts Ópal skot og það ekkert lítið af því og að sjálfsögðu endaði það bara á einn veg, ég drapst að sjálfsögðu um 10 leitið og þá búinn að losa mig við allt sem ég hafði borðað síðustu vikurnar og já svo var eitthvað af kexi sem hafði ratað á einhvern vitlausan stað en nóg um það. Ég tel mig nú samt bara frekar magnaðan vegna þess að um tveimur tímum síðar var ég komin á fætur aftur frekar sprækur en ég var svo endanlega búinn um 3 leitið um nóttina. Pétur tók víst fullt af frekar mögnuðum myndum sem koma eflaust bráðlega en ég held að það sé aðeins verið að fara yfir þær áður en þær fara á netið vegna þess að mér skilst að mér hafi leiðst pínulítið að hafa þurft að vera í nærbuxum og því oft viljað sleppa félaganum nokkuð oft út bara svona til að gefa honum ferskt loft sem er að sjálfsögðu nauðsýnlegt.

Ég eyddi svo besta degi ársins til þessa ógeðslega þunnur uppí rúmi í gær og það var sko ekkert verið að liggja bara í leti og horft á sjónvarpið, ég var að deyja heima hjá mér og var enganveginn að njóta þess að geta verið í sófanum fyrir framan sjónvarpið.

Smá heilræði til ykkar krakkar sem eruð að byrja ykkar drykkju:

 "EKKI DREKKA ÓPAL SKOT"


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 23:08:53 / DiMaggio

MEIRA MEIRA!!!!!!!!

ÉG GLEYMDI AÐ SETJA INN MYNDIRNAR ÚR STEGGJUNINNI FRÁ MADRÍD. ÞETTA ERU MYNDIR FRÁ HRANNARI, ÉG VONA BARA AÐ HONUM SÉ SAMA ÞÓ ÉG ´HAFI SETT ÞÆR Á SÍÐUNA. ÞÆR ERU UNDIR STEGGJUN OG MADRÍD HÉRNA TIL HLIÐAR.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 22:45:57 / DiMaggio

ég er mættur aftur

Jæja þá er ég að koma aftur. Ég hef ekki mikið verið að nenna þessu bloggi og svo er maður búinn að hafa alveg nóg að gera þannig að þetta er kanski ekki búið að vera efst á forgangslistanum.

Það hefur mikið gerst síðan ég lét heyra í mér síðast. Ég er t.d. búinn að ganga frá kaupunum á íbúðinni sem ég var að reyna að kaupa en hún er í Lyngmóum 9 sem er við hliðiná honum Pétri og svo er mamma náttúrulega þarna líka þannig að maður er bara loksins komin aftur á heimaslóðir sem er algjör snild.

Ég var svo steggjaður fyrir ekki svo löngu síðan og það var sko ekkert voðalega leiðinlegt. Félagarnir komu á fimmtudegi kl 7.30 um morgun og náðu í mig í vinnuna sem kom mér mjög á óvart.Svo ókum við af stað í limmósíu áleiðis til Keflavíkur en þaðan lá leiðin til Madrídar og átti að dvelja þar í 4 daga. Þannig að félagarnir buðu mér bara til Madrídar og þar átti steggjunin að fara fram. Þeir voru reyndar búnir að láta mig klára eina heila 0pal skot flösku á leiðinni uppá flugvöll sem var kanski ekki alveg nógu gott vegna þess að ég drapst í bókstarlegri merkingu í fríhöfninni búinn að æla yfir mig allan og gat ekki einu sinni gegnið óstuddur að hliðinu þar sem við áttum að fara um borð í flugvélina en eins og mér einum var lagið þá náði ég að redda mér með en það munaði sko alls ekki miklu að ég fengi ekki að koma með sem hefði nú verið frekar fyndið. Við tók svo bara algjör snild þar sem við gerðum helling af vígalegum hlutum með honum faðir mínum honum Kristni R Ólafssyni. En að sjálfsögðu er það ekki gefið upp hér hvað það var sem við gerðum í erlendri friðhelgi.

Svo er bara giftingin á næsta leiti og allt sem því fylgir og strax að henni lokinni þá er ég að flytja í nýju íbúðina. Svo höfum við bræðurnir verið fengnir til að undirbúa gríðarlega stemningu í kringum næstu landsleiki sem verða haldnir hér heima í handboltanum og erum við þá aðarlega að tala um Svía leikin sem verður þann 17 júni en þá verður allt vitlaust, ég get lofað því.

Þetta er komið gott í bili, næsta blogg verður pottþétt skemmtilegra en ég vildi bara aðeins vera með smá upprifjun í þetta skiptið vegna þess að það er svo langt síðan ég bloggaði síðast. En á meðal þess sem ég mun tala um í næsta blogg er t.d. naflakuskið hans Péturs sem er alveg ótrúlegt fyrirbæri útaf fyrir sig, fleiri nýja hluti sem við bræður erum að stefna að að gera á næstunni, sumarið sem er að koma og margt fleira þannig að endilega fylgist spennt með á næstu dögum því magginn ætlar að fara á flug í þessu blogg aftur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 22:58:02 / DiMaggio

allt að gerast þessa dagana

Það er búið að vera hellingur að gera þessa vikuna. Íbúðin mín er búin að vera á sölu núna í 2 vikur og ekki mikið búið að vera að gerast. Ég fann svo í vikunni íbúðina sem mig langar að flytja í en hún er í Lyngmóum 7 og ef ég næ að selja mína fljótlega þá geri ég tilboð í hana um leið og vonandi verður hún ekki farin þegar það gerist.

 http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=196776

 

Ingibjörg hans Péturs var að keppa í fegurðarkeppni Reykjavíkur á fimtudaginn var og það fór ekki eins vel og við vorum búin að spá en hún kost því miður ekki áfram sem er í rauninni skandall ef við skoðum aðeins sumar af þeim stelpum sem komust áfram. Mér skilst reyndar að það sé búið að biðja hana um að koma samt og taka þátt í Ungfrú Ísland keppninni en ég veit ekki hvað verður úr því.

 http://ungfruisland.is/forsida.php?lang=is&idp=18&id=190

Pétur og Ingibjörg voru svo að fá afhenta íbúðina sem þau eru að fara að leigja í dag og var ég að hjálpa þeim að flytja í dag. Þessi íbúð sem þau voru að fá er bara algjör snild, mjög björt og opin og hentar þeim bara rosalega vel enda eru þau búin að gera hana rosalega fína. Þannig að það er komin nýr staður sem við getum hist á áður en við viljum halda af stað í bæin. Ég segi bara til hamingju með nýju íbúðina Pétur og Ingibjörg

Svo síðast en ekki síst þá var konan tekin í gegn í dag, þar að segja það var verið að gæsa hana. Mér skilst að það hafi verið meðal annars farið með hana uppá flugvöll en þar fór hún í listflug þar sem henni var snúið í hringi og snúið á hvolf, farið í dýfur, snúninga og ég veit ekki hvað og hvað. Heyrði aðeins í henni í dag og þá voru þær allar orðnar blindfullar og bara búið að vera ógeðslega gaman.

 Þetta er svona það helsta sem hefur verið að gerast hjá mér þessa vikuna en það er búið að vera nóg um að vera og reyndar miklu meira sem ég nenni nú bara ekki að vera að tala um hérna en ég held að næstu vikur eigi ekkert eftir að vera rólegri því að það fer að styttast í brúðkaupið og svo er ég að taka fermingamyndir og það er nóg að gera í því svo eru ferminga veislur framundan og ekki má gleyma því að ég er með íbúðina mína á sölu og það gæti allt gerst í þeim málum á næstunni þannig að það eru bara skemmtilegir tímar framundan og hellingur vonandi sem ég get skrifað um þannig að allir að fylgjast með á næstu dögum og vikum.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 23:43:49 / DiMaggio

Gellan var í rauninni KALL!!!!!

Þessi helgi er bara búin að vera fín. Fór að tippa eins og venjulega í gær og fór svo á lokahóf  tipphópsins seinna um daginn og viti menn ég og Björn fengum bara verðlaun fyrir að vera bjartasta vonin. Við hlógum nú töluvert að því að Kristján og Helgi voru neðstir af öllum en það er nú vægast sagt lélegt og gerðum við mikið grín að þeim þegar úrslitin voru tilkynnt.

Seinna um kvöldið kíktum við nokkrir heim til Björns og fórum svo í bæinn og skelltum í okkur nokkrum viski í kók glösum. Við hlógum nú töluvert heima hjá Birni en við vorum að rifja upp ferð sem við félagarnirt fórum til Benidorm þegar við vorum 17 ára. Það fyndna við þá ferð er að við smökkuðum ekki einn sopa af áfengi og fórum að sofa um miðnætti alla daga í 2 vikur.

Við skelltum okkur svo í bæinn með syni forsetans* og byrjuðum á Oliver. Þar var að sjálfsögðu stappað og nóg af fólki sem hægt var að rugla í en við erum orðnir svo dannaðir þannig að við gerðum ekkert þar. Við Björn vorum reyndar svo heppnir að það var gella sem flassið okkur bara svona uppúr þurru og vakti það mikla lukku. Því næst var farið á Hverfis og þar komst ég að því að sumarið hlýtur að vera að koma vegna þess að allar stelpurnar sem ég talaði við voru ný hættar með kærustunum sínum sem þær höfðu flestar verið búnar að vera með í mörg ár. Þetta segir mér aðeins eitt, strákarnir eru farnir að hugsa til sumarsins og vilja vera á lausu svo þeir geti leikið sér lausir og liðugir.

Það sem er mér samt efst í huga eftir þessa bæjarferð okkar félaganna og syni forsetans* var sú óþæginlega staðreynd að það var gaur inná staðnum sem leit í fljótu bragði út fyrir að vera virkilega flottur kvennmaður en þegar betur var að gáð kom í ljós að þetta var gaur sem glennti sig og dansaði uppá borði eins og strippari. Það kæmi mér ekki á óvart að einhver nördin sem aldrei hefur séð nakin kvennmann áður hafi verið orðin það drukkinn kl 6 um morgunin að hann áttaði sig ekki á því að þessi flotta hávaxna svarta gella sem var komin með hendina ofaní buxurnar á honum var í rauninni karlmaður sem var búinn að setja á sig gervi brjóst og búinn að strekkja drjólan á sér aftur í aftursætið. Hugsið ykkur að vera loksins kominn með geðveika gellu uppá armin og þið hringið í félaga ykkar til að monta ykkur yfir því að þið eigið eftir að vera  fyrstir til að ríða af ykkur félögunum og svo kemuru heim og ætlar að taka hana úr buxunum og fara að klára dæmið en í staðin fyrir að þú klárir dæmið þá er það gellan sem klárar dæmið á þér.

Já ég get alveg viðurkennt að þetta kom uppí huga minn í dag þegar ég fór að hugsa til baka og var að rifja upp hvað hefði gerst hjá okkur félögunum og syni forsetans*. Ég er nokkuð viss um að þessi gaur hafi náð að plata einhvern drukkinn nörd með sér heim. 

Allaveganna þetta var bara fínasta helgi í alla staði, mikið drukkið, mikið hlegið og svo eiginlega bara legið í leti þess á milli.

* Forseti kíwanishreyfingarinnar í Reykjanesumdæmi 


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 22:41:21 / DiMaggio

Silvía Nótt

Ég var að hlusta á ensku útgáfuna af "til hamingju Ísland" áðan og er bara mjög ánægður með hana, reyndar finnst mér hún bara algjör snild. Það er eins gott að hún komist í gegnum niðurskurðin og komist í aðalkeppnina. Það er nefnilega gríðarlega mikið undir hjá landanum enda margir farnir að skipuleggja eurovision party og þess vegna má hún ekki klikka. Það er því ekki úr vegi að spyrja hvort það sé einhver sem er tilbúinn til að bjóða sig fram í að halda partý þann 20 maí næstkomandi.

hér er lagið og myndbandið  http://b2.is/?sida=tengill&id=155765

Ég rakst svo á þessar síður á netinu áðan og áttaði mig á því að það er alveg hellingur af liði þarna úti sem er alveg að missa sig yfir henni. Endilega kíkið á þær

http://silvianott.mblog.is/mblog/web

http://www.silvianott.com/


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 00:08:50 / DiMaggio

Það er ekki til neinn Guð sama hvað þið segið

Við vorum að ræða það í vinnunni í dag hvað trúarbrögð eru að fara með heimin. Flest öll stríð sem eru í gangi núna eru vegna trúarmismunar, þau snúast um mismunandi trú og þess vegna er ekki mjög líklegt að þau eigi eitthvað eftir að hætta á næstunni. Það er bara svo magnað að fólk sé í raun og veru að trúa því að það sé einhver þarna uppi sem kallar sig guð almáttugan og þykist geta gert það sem honum dettur í hug. Hann á að geta linað allar okkar þjáningar og gert okkur hamingjusöm. Það er nú bara ótrúlegt hvað það er búið að heilaþvo mikið að fólki út um allan heim sem gjörsamlega er að missa sig útaf trúnni og þar er Gunnar í krossinum fremstur í flokki. Pétur spurði kaþolika í vinnunni sem er mjög trúaður hvort hann héldi að guð almáttugur gæti búið til svo stóran stein að hann gæti ekki lyft honum sjálfur og að sjálfsögðu svaraði hann því neitandi og reyndi svo að útskyra af hverju guð væri almáttugur þrátt fyrir það að geta ekki búið til stein sem hann gæti ekki lyft sjálfur.

Ég persónulega trúi ekki að það sé til einhver Guð þarna úti sem er að fylgjast með okkur og hjálpi okkur þegar við þurfum á honum að halda. Það er bara ekki séns að það sé nokkuð svoleiðis og þess vegna mæli ég með því við fólk að það viðurkenni þetta bara og fari að hugsa um eitthvað annað.

það væri gaman að heyra hvað þið segið um þetta. Eruð þið trúuð eða er ykkur alveg sama um þetta.


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 22:16:44 / DiMaggio

Stelpur klæðið ykkur svona og við mætum

Það er búin að vera umræða í gangi á www.sport.is  þar sem Suberstar eru rakkaðir niður fyrir að vera ekki að mæta á leiki hjá stelpunum í handboltanum hjá Stjörnunni. Það er einhver gaur að tjá sig þar sem er hrikarlega bitur úti okkur og segir okkur vera hræsnara. Ég rakst á nokkrar myndir á netinu af stelpum sem eru að spila blak og þá áttaði ég mig almennilega á því hversvegna við mætum ekki. Ég læt bara myndirnar tala sínu máli og ég vona bara að þið áttið ykkur á því sjálf.

      


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 22:37:27 / DiMaggio

kallinn er mættur aftur

Jæja þá maður komin aftur eftir mjög langt hlé. Það er búið að vera nóg að gera hjá manni upp á síðkastið þannig að maður er bara ekki að nenna að skrifa hérna inn. Ég get reyndar alveg viðurkennt að ég hef aðallega verið að skrifa á Suberstar síðanu en nú fer eitthvað að gerast hérna.

Það helsta sem hefur verið að gerast hjá manni síðan ég skrifaði síðast er þetta.

Stjarnan varð bikarmeistari í handbolta og við í Suberstar og reyndar allir Garðbæingar sem mættu í höllina til að kvetja stóðu sig ótrúlega vel og áttu sigurinn fullkomlega skilið. Þessum degi munum við flest gleyma seint og djammið um kvöldið er eflaust með því besta í langan tíma, þar bar hæst að Pétri og Einari Oddi var hent út af Vegamótum vegna hávaða en þeir voru ennþá með lúðurinn sem þeir voru með á leiknum um daginn. Einnig barði Roland markmaður Stimma markmann og sagði honum að gera eins og hann segði og þá myndi hann ná langt, þetta var frekar fyndið en stimmi var að skíta í sig af hræðslu.

Ég fór á hótel Örk um síðustu helgi en þar var haldin árshátíð í vinnunni, það var að sjálfsögðu geðveikt fjör, mikið drukkið og djammað. Ég mæli með því að þið farð þangað vegna þess að það er búið að taka allt hótelið í gegn og það lítu rbara helvíti vel út. Þetta er nú ekkert svakalega dýrt að skella sér í hveragerði og upplifa smá utanlandsstemmningu, skella sér í pottinn fá sér fínan mat og djamma svo rækilega með vinum og vandamönnum. Þetta er einmitt tilvalin staður fyrir vinahópinn.

Svo var ég að setja íbúðina mína á sölu í vikunni og svo er maður að sjálfsögðu í framhaldi af því að skoða íbúðir sem maður gæti hugsað sér að festa kaup á. Það er reyndar ekkert svakalega mikið í boði sem manni lýst vel á þessa dagana en það eru samt 2 eða 3 sem maður er búinn að finna. Svo er bara að vona að það gangi vel að losa sig við sína og að maður fái fínt verð fyrir hana.

Og fyrir þá sem ekki vita þá er kallinn að fara að gifta sig í sumar og þegar maður er ekki að gera eitthvað annað eins og t.d. að öskra með Suberstar, vinna eða eitthvað annað þá er maður að undirbúa giftinguna en ég hefði aldrei trúað því hvað það er mikið sem maður þarf að gera fyrir svona brúðkaup og ótúlegt hvað maður þarf að kaupa mikið af óþarfa hlutum sem skipta í rauninni engu máli. Og svo er náttúrulega okrað á öllu sem viðkemur brúðkaupinu þannig að maður fer næstum því á hausinn bara við það að gifta sig. En þetta verður reyndar snildar veisla og verða nokkrar óvæntar uppákomur þannig að það er vonandi að fólk eigi bara eftir að skemmta sér. (P.S Drífa brúðkaupið er 27 mái ef þú varst búinn að gleyma því.)

Þetta er nú svona það helsta sem hefur verið að gerast hjá mér uppá síðkastið og svo eru bara spennandi tímar framundan. Brúðkaupsundirbúningurinn heldur áfram, Suberstar er alltaf að verða stærri og sterkari og Stjarna er að fara að verða Íslandmeistari í handaboltanum, vonandi er maður að fara að selja íbúðina sína og ef allt gengur upp þá fer ég að kaupa aðra í staðinn sem fyrst, páskarnir fara að koma og svo á alveg örugglega eitthvað fleira spennandi eftir að gerast þannig að það eru bara skemmtilegir tímar frammundan.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 01:32:11 / DiMaggio

Frekar þreytt skoðanakönnun

Hildur var að spyrja mig hérna í einhverju commenti hvort þessi skoðanakönnun sem ég er með hér til hliðar væri ekki orðin frekar þreytt og éh get alveg tekið undir það að hún sé orðin frekar þreytt enda hef ég breytt um.

 Ég vill bara minna á að hann Pétur átti afmæli þann 15 feb og óskum við honum til hamingju með það. Kallinn er að fara að halda uppá afmlisveislu aldarinnar um helgina og verður bara útvöldum boðið enda kanski ekki hægt að bjóða öllum sem kallinn þekkir enda er villan í Lyngmóum sú minnsta í heimi. En það á ekki eftir að stoppa það heppna fólk sem hefur fengið boðskort í að skemmta sér ólýsanlega vel. Ég hef mjög áræðanlegar heimildir fyrir því að þetta verði gríðarlega vel heppnað grímupartí þar sem engum er hleypt inn í húsið nema vera eins og fífl til fara. Og svo skilst mér að það verði óvæntur glaðningur handa gestum sem hann Orri mun hafa yfir umsjón með og get ég alveg lofað því að ef Orri kemur nálægt einhverju þá breytist það vanalega í gull stuttu seinna þannig að það verður örugglega eitthvað veglegt sem hann er að setja saman.

Allaveganna þá hlakka ég bara til að hitta ykkur fallega fólkið hjá Pétri þar sem fjörið verður.

það má heldur ekki gleyma því að hún móðir mín hún Lilja P á afmæli í dag þann 17 feb og ég vona að þið óskið henni vel og innilega til hamingju með það.

over and out     DiMaggio


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 18:09:31 / DiMaggio

ömurleg auglýsing

Eruð þið að grínast með þessa auglýsingu sem er hérna til hliðar. Gaurin er frekar ömurlegar og þessar myndir af honum eru náttúrulega bara grín. Ég er alveg viss um að það er alveg hellingur af fólki sem er búið að vera spá í að kaupa sér svona apparat eftir að það sá þessa auglýsingu. Eða hvað? NEI  ég er viss um að fólk er ekki að fara að kaupa sér þetta tæki enda er þetta frekar hlægilegur gaur sem er þarna á ferð.

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 23:51:21 / DiMaggio

Vel upp alinn drengur

Það er greinilegt að þessi ungi drengur á videóinu hér fyrir neðan hefur fengið almennilegt uppeldi og greinilega frá föður sínum. Það fer heldur ekkert á milli mála hver það er sem hann á að hata.

Þetta er algjör snild að sjá hvað þessi gutti fer ótrúlega illa með Gerard

http://www.fotbolti.net/annad/gerrard.gif


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 23:44:16 / DiMaggio

Tannlæknafóbía

                                              

Þessi viðbjóður er ástæðan fyrir því að Pétur bróðir svarar ekki í símann sinn núna og eflaust ekki næstu daga. Málið er það að hann var í skurðaðgerð í dag vegna þess að hann er með svona vanskapaða tönn í kjaftinum og það var ekki hægt að fjarlægja hana með hefbundnum hætti.

Ég hef aldrei kynnst nokkrum manni sem er eins hrædur við tannlækna og Pétur þannig að þið getið ímyndað ykkur hvernig honum hefur liði þegar tannlæknirinn var að skera í kjaftinn á honum í morgun. Hann var það hræddur við þetta að hann fékk að lokum kæruleysissprautu til þess að hægt væri að framkvæma aðgerðina og hann myndi róast. Núna er hann bara að jappla á grisju sem hann fékk og á að hjálpa til við að stöðva blæðinguna sem kemur í kjölfarið á svona aðgerð.

Við skulum bara öll senda Pétri góða straum í dag og á morgun og vonandi fer strák greyinu að líða betur. Hugur og hjörtu okkar eru með þér Pétur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16